Þeistareykir - Svæði 2
Svæðið er afmarkað á korti. Aðkomuleiðir að svæðinu eru tvær, Reykjaheiðavegur upp frá Húsavík og Þeistareykjavegur frá Hólasandi (vegur 87). Reykjaheiðavegur/Þeistareykjavegur er uppbyggður og liggur í gegn um Þeistareyki frá Kísilvegi (vegur 87) og niður á Húsavík, þessi vegur liggur að öllum 4 veiðisvæðunum. Fjöldi slóða er á svæðinu sem geta verið þugfærir sökum snjóþyngsla. Öll svæðin eru mjög fjölbreytt en á þeim má finna fjalllendi, hraun, mólendi og gíga. Vegir eða vegslóðar skilja að öll svæðin en ytri mörk þeirra eru sveitarfélagsmörk.
Veiðisvæði 2 á Þeistareykjum afmarkast á eftirfarandi hátt
- Norður: Landamerkjagirðing á sveitarfélagamörkum við Norðurþing.
- Suður: Slóði frá afmörkum bannsvæðis við Bæjarfjall að Litla-Víti og austur að sveitarfélagamörkum.
- Austur: Sveitarfélagamörk við Skútustaðahrepp.
- Vestur: Þeistareykjavegur og ytri mörk á bannsvæði.
Svæði 2 er 10.631 hektarar að stærð.
Bannað er að veiða á aðliggjandi svæði í kringum Þeistareykjavirkjun og suður með Bæjarfjalli, upp að rótum Ketilsfjalls og fjallsbrún Bæjarfjalls.Nafn: | Sæþór Gunnsteinsson |
Heimilisfang: | |
GSM | 898-8327 |